5.5.2008 | 11:53
Reglulegar gönguferðir fyrir þá sem vilja æfa enn meira
Góð ábending fyrir þá sem vilja stunda reglulegar gönguferðir og æfa enn betur og meira fyrir STÓRU ferðina okkar:
Útivistarræktin er vettvangur fólks til að hittast og spjalla, ganga saman og vera saman úti í náttúrunni. Gengið er tvisvar í viku allt árið og þrisvar í viku frá vori og fram á haust.
Á mánudögum kl. 18:00 í Elliðaárdalnum og á fimmtudögum á sama tíma í Öskjuhlíð og Skerjafirði. Á mánudögum er farið frá Toppstöðinni við Elliðaár og farinn hringur í Elliðaárdalnum. Gengið er upp í gegnum hólmann í ánni og vestan megin við ána upp að Vatnsveitubrú, þar sem farið er austur yfir ána. Stansað er í nágrenni Árbæjarlaugar og haldið haldið niður með Elliðaánni að austan. Gönguferðinni lýkur á sama stað og hún hófst rúmri klukkustund fyrr.
Á fimmtudögum er farið kl. 18:00 frá bílastæði við austurenda göngubrúarinnar yfir Kringlumýrarbraut í Fossvogi og gengið vestur með Öskjuhlíð, um Nauthólsvík og út í Skerjafjörð. Farið er sömu leið til baka og gönguferðin tekur rúma klukkustund eins og á mánudögum.
Nánari upplýsingar um Útivistarræktina má sjá hér: http://utivist.is/utivist/utivistarraektin/
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, Íþróttir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.