Færsluflokkur: Ferðalög
22.7.2008 | 13:17
Vegir liggja til allra átta
Fjallageitin Sólveig Svavarsdóttir sem er ein af okkar föngulega gönguhóp sendi okkur þessar myndir af sér og sínum en þessar myndir eru teknar í upphitunargöngum þeirra fyrir Laugavegsgönguna miklu sem rennur upp eftir nokkra daga. Þessar myndir eru teknar á Esjunni, á Húsafelli og Lambafellsklofi nú í lok júní og byrjun júlí.
Höfum í huga að enginn er verri þótt hann vökni og þó svo að spáin fyrir helgina sé ekki endilega spennandi í dag þá höfum við fulla trú á því að það eigi eftir að bresta á með blíðu þegar nær dregur.
....já lífið er svo sannarlega yndislegt
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2008 | 11:16
Fjallageitur klífa Akrafjallið
Mæting hefur aldrei verið betri innan hópsins en í jónsmessugönguna á Akrafjall sem farin var þriðjudagskvöldið kl. 22:00 frá rótum Akrafjalls. Hópurinn ákvað að hittast við stórglæsilegt útibú bankans í Grafarholtinu og hélt síðan þaðan í samfloti. Gangan upp á Akrafjallið tók um eina klst og hvíldu einhverjir göngugarpar lúgin bein í pottinum í sundlauginni á Akranesi eftir gönguna. Þar tóku ÍA menn vel á móti okkur með grilluðum pylsum og svala og var það einróma álit allra þeirra sem þátt tóku í þessari göngu að hún hafi verið kostuleg og góð vísbendingin um það sem koma skal í ferðinni okkar á Laugarveginn. Það eina sem vantaði var í raun Magnús geithafur með gítarinn á bakka sundlaugarinnar og þá hefði pakkinn verið fullkominn. Pakkinn verður fullkominn í Laugarvegsgöngunni
Hér koma nokkrar myndir:
Síðan eru bara áframhaldandi Esjugöngur - næsta er á morgunn kl. 11:00. Hist á bílastæðinu - sjáusmt hress
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2008 | 14:58
Af Esjuferð um helgina og Akrafjallsferð morgunsins
Það var góður hópur sem lagði leið sína á Esjuna nú um nýliðina helgi. Veðrið var upp á sitt allra bestasta og stemningin eftir því eins og sjá má greinilega á meðfylgjandi myndum:
Á morgunn er það svo bara Halló Akrafjall. Planið er að hittast á bílastæðinu við Grafarvogsútibúið okkar kl. 21:00 og sameinast þar í bíla enda stanslaust sparnaður í gangi á alla bóga ;) Lagt verður síðan af stað frá rótum Akrafjalls kl. 22:00 og síðan eru náttúrulega allir hvattir til að að hópast í sundlaugina að göngu lokinni! Sjáumst hress og kát á morgunn!
Ferðalög | Breytt 27.6.2008 kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2008 | 16:05
Greiðsla á ferð fyrir föstudaginn 4, júlí
Þátttakendur í gönguferð árins 2008 eru vinsamlegast beðnir um að greiða ferðina fyrir föstudaginn 4. júlí.
Þeir sem greitt hafa staðfestingargjald greiða kr. 23.000 á mann
Þeir sem ekkert hafa greitt nú þegar greiða kr. 28.000 á mann
Reikningsnúmerið er 0101 - 05 - 285360 kt. 210577-5809
Gert er ráð fyrir að ganga frá greiðslum til rútufyrirtækis, gistiaðila, trússara auk fleiri aðila fyrir brottför.
Svo bara höldum við áfram að ganga eins og enginn sé morgundagurinn
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2008 | 16:01
Hópurinn á Esjuna alla laugardaga kl. 11:00 fram að Laugarvegsgöngu
Þeir sem mögulega geta komið því við eru hvattir til að hittast á bílastæðinu við Esjuna alla laugardaga fram að Laugarvegsgöngunni. Þó er ráðlagt að göngugarpar taki sér c.a. 2 vikna frí fyrir hina einnu sönnu göngu þannig að líkaminn sé vel úthvíldur og ólaskaður.
Stefnan er tekin á Akrafjallið í jónsmessugöngu þriðjudaginn 24. júní en gangan er á vegum Íþróttabandalagsins á Akranesi. Gengið verður á fjallið um kvöldið og eru sundlaugar opnar í kjölfarið eitthvað fram á nótt. Án efa frábær ganga sem allir ættu að mæta í!
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2008 | 09:17
Skemmtileg ganga á Keili í gærkvöldi
Það voru 6 fjallageitur sem hittust við Höskuldarvellina í gærkvöldi í kringum áttaleytið og var þar gengið til liðs við c.a. 100 manna hóp frá Keflavík. Veðrið var kjörið til göngu og átti hópurinn frábæra stund saman. Gangan frá bílastæði upp á Keili og tilbaka tók í heildina c.a. 2,5 klst og það í mjög skemmtilegri og alls ekki erfiðri göngu. Við hvetjum alla til að ganga þessa leið sem er alls ekki eins erfið og hún lítur út fyrir að vera sér í lagi ef góðir göngustafir eru hafðir við höndina.
Þessi hópur sigraði Keili í gærkvöldi:
Ráðgert er að plana c.a. eina göngu í viku fram að hinni frægu Laugarvegsgöngu í lok júlí!
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 09:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2008 | 13:08
Tékklisti til viðmiðunar fyrir hinn eina sanna Laugarveg
Göngugeithafurinn Jón Helgi hefur tekið saman tékklista fyrir okkur fyrir Laugarvegsgönguna úr nokkrum listum sem gott er að hafa til viðmiðunar fyrir gönguna okkar nú í sumar.
Listinn skiptist í fjóra flokka:
- Búnaður fyrir hverja dagsferð: Hér átt við þann búnað viðeigandi er að hafa með sér í hverja dagsferð fyrir sig
- Taska í Trúss: Hér er átt við þann búnað sem við þurfum ekki að hafa með í dagsferðirnar og mega flytjast á milli gististaða með trússurunum okkar
- Morgunmatur og matur fyrir dagsferðir: Hver og einn þarf að hugsa um morgunmat fyrir sig og nesti fyrir hverja og eina dagsferð. Í skjali er að finna tillögur að því sem gott er að hafa með sér annars er mælt með því að fólk borði vel á morgnana og taki svo eitthvað létt en orkuríkt með sér í göngurnar sjálfar. Kvöldverður er síðan sameiginlegur
- Dót í sameiginlegri tösku: Það er óþarfi að allir séu að taka þennan búnað sem talinn er þarna upp með sér og því ákveðið að búa bara til eina sameiginlega tösku fyrir þetta. Undirbúningshópurinn sér um að setja saman í töskuna.
Búnaður fyrir hverja dagsferð (4 ferðir í heildina) | Morgunmatur x3 og matur fyrir dagsferðir x4 |
Góður og þægilegur dagpoki/bakpokahlíf/plastpoki inní - Max40L | Flatkökur/brauð |
Góðir og aðlagaðir gönguskór + auka reimar | Álegg/hangikjöt/ostar |
2 pör mjúkir göngusokkar | Súpur/núðlur/pasta |
Nærföt: Ull/Flís/Gerviefni - ekki bómull (geta notast sem náttföt líka) | Hrökkbrauð/kex |
Flís- eða ullarpeysa | Þurrkaðir ávextir |
Hlífðarjakki/galli - andandi | Harðsoðin egg |
Regnjakki/buxur - þunnt og úr gúmmíi (vatnshelt) | Kakóbréf/kaffi/te |
Húfa og 2pör flís vettlingar | Bland í poka/súkkulaði/hnetur/rúsínur 4x100gr |
Stuttbuxur | Tyggjó/ópal/brjóstsykur/súkkulaðistykki |
Lítið handklæði | Dót í sameiginlegri tösku |
Vaðskór t.d. tevur eða laxapokar eða inniskór með frönskum rennilás | Skæri / flísatöng |
Göngustafir | Naglaklippur |
Salernispappír/pappírsvasaklútar í litlum pakningum | Plastdiskar/plastglös/plastskálar |
Drykkjarbrúsi fyrir vatn | Vasahnífur |
Hitabrúsi / lokið er bollinn | Sólarvörn |
Sólgleraugu | Verkjalyf |
Myndavél | Bólgueyðandi |
Taska í Trúss (fyrir jeppa) | Hælsærisplástur/plástur |
Svefnpoki og lítill koddi | Grisja |
Nærbuxur - til skiptana | Teygjubindi |
Handklæði/sundföt | Eyrnatappar/buff/LÍ |
Aukaföt/kvöldin/á leið í bæinn | Nál & tvinni |
Hnífapör/Steikarhnífur/gaffall/skeið | Sótthreinsandi |
Tannbursti/tannkrem | Eldspýtur |
Varasalvi | Þvottaklemmur |
Sápa/sjampó/greiða/bursti | Brjóstsviðatöflur |
Rakáhöld | Sameiginlegur kvöldmatur |
Salernispappír/pappírsvasaklútar í litlum pakningum | Vísnahefti fyrir kvöldsöng |
Aðrar viðeigandi og nauðsynlegar snyrtivörur | Gítar |
Það er vonandi að þessi listi komi að góðum notum. Við getum notað sumarið í að undirbúa okkur og verða okkur úti um réttu græjurnar sem jafnvel einhverjir og kannski allir eiga til staðar nú þegar.
Mælum þó ekki með því að nestið verði smurt fyrr en nær dregur :) NJÓTIÐ :)
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2008 | 15:33
Ganga á Keili miðvikudaginn 28. maí
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2008 | 15:02
Gönguferðir á Reykjanesi í sumar
Allar gönguferðirnar hefjast hjá SBK að Grófinni 2-4 þar sem farið verður með rútu.
Gengið er á miðvikudögum og hefjast allar gönguferðirnar kl. 19:00 og kostar 500kr rútufargjald.
Í leiðalýsingu fyrir gönguferðirnar verður tilgreint hvað þær taka langan tíma ásamt erfiðleikastigi. Í hverri gönguferð er tekinn nestispása þar sem sagt verður frá ýmsum fróðleik um nánasta umhverfi.
Vert er að benda göngufólki á að allir eru á eigin ábyrgð í gönguferðunum og þurfa því að huga að eigin öryggi.
Nánari upplýsingar má sjá hér:
http://vf.is/resources/files/GonguleidirReykjanesNetid.pdf
Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á eftirfarandi heimasíðum www.hs.is, www.gge.is, www.sbk.is og www.vf.is.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2008 | 11:58
Enn fleiri valkostir sem bjóðast í reglubundunum gönguferðum
Kraftganga,
stundum kallað Öskjuhlíðarhópurinn æfir göngur reglulega tvisvar í viku allt árið um kring.
Tímatafla fyrir vor og sumar og nánari upplýsingar um Krafgönguhópana má sjá hér:
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)